Einföld kjúklinga nachos á fimmtán mínútum

Einföld kjúklinga nachos á fimmtán mínútum

Þessi nachos eru frábær leið til að nota afganga! Við komum með okkar tillögur en notið endilega það sem þið eigið til.
Tilbúið á (heildartími) 15 mínútum
Hentar fyrir (skammtar) 8
Hversu sterkt? Mild
Innihaldsefni 8

Innihaldsefni

  • 200 g Old El Paso™ Original Nachips™
  • 1 msk. Old El Paso™ Garlic & Paprika krydd fyrir taco
  • 100 g Old El Paso ™ Sliced Green Jalapeños
  • Olía til að smyrja bökunarplötu
  • 225 g cheddar ostur, rifinn
  • 300 g eldaður kjúklingur, niðurskorinn
  • 175 g frosnar eða niðursoðnar maísbaunir
  • 1 jalapeño chili, skorinn

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 200ºC (blástursofn, 180ºC ), gasofn á 6. Leggið bökunarpappír á bökunarplötu og smyrjið með olíu. Dreifið helmingnum af Nachips™ flögunum jafnt á bökunarplötuna.
  2. Blandið saman osti og taco kryddinu í litla skál. Sáldrið hemingnum af ostablöndunni yfir Nachips™ flögurnar. Setjið helminginn af kjúklingi, maísbaunum og jalapeño bitum ofan á Nachips™ flögurnar. Endurtakið allt einu sinni.
  3. Hitið í 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

Ábendingar sérfræðinga

  • Frábært með kirusberjatómötum, koríander, guacamole eða sýrðum rjóma.
  • Notið venjulegar tortillur ef þið fáið ekki Nachips™.